Já, það er nú svo bara þannig sko, að ég þarf að vera með gömlu góðu símalínuna tengda við tölvuna til að komast á eitthvað sem ég held að heiti internet... Nú í dýrtíðinni fer maður ekki mikið á netið skal ég segja ykkur.. Ég verð í fyrsta lagi mjög pirruð og leiðinleg þegar ég þarf að vinna eitthvað á netinu hérna í langtíburtistan... Reynir alveg afskaplega mikið á þolinmæðina get ég sagt ykkur, einungis 33 kbps!!! VÚPDÍDÚ!!!!
Svo þar sem þetta tekur endalausan tíma að hlaða niður forsíðu MBL eða að skoða tölvupóstinn, þá kostar það nú bara sitt líka, þannig að ég er bara nánast ekkert að fara á netið nema í brýnustu nauðsyn og þá er skoðað :MBL.is, SPM.is (Sparisjóðurinn minn..) uuu, tjékka á tölvupóstinum okkar Viðars... thats about it, og stundum þarf ég að finnna einhver lög með hljómum fyrir Viðar...
Annýhús!! Búin að heyja fyrir norðan, og erum líka að heyja á Kaðalsstöðum, en vonandi klárast það núna á morgun bara!
Búið að bjóða mér vinnu í vetur á Hólmavík, langar afskaplega mikið að taka henni, en vandamál með litla kútinn minn.. engin dagmamma á svæðinu og ég og skólastórinn búin að leita okkur sveitt að pössunarpíu, en þær virðast vera eitthvað af skornum skammti. En þá er ég bara að leita mér að AU-Pair, þannig að ef einhver þarna úti vill koma norður og passa guttann minn, eða þekkir einhvern sem vill koma norður og passa guttann minn.. þá er það í fínu lagi!! Mig langar mest að fá mér svona Pólska langömmu, með slæðu og krumpað andlit.. En Viðar vill meir fá einhverja súper hot bodí 20 skvísu...en þá set ég það að sjálfsögðu sem skilyrði að hún hallist frekar að kvenkyninu en Viðari...tíhíhí allt í gamni samt að sjálfsögðu!
Ég var í hnéspeglun í dag í uuu sennilega 5. skiptið, veit ekki hvað var að mér í þetta skiptið, hitti lækninn aftur á fimmtudag og þá segir hann mér hvað var.. mjög líklega var um að ræða einhverja brjóskbita úr hnéskélinni sem voru komnir á einhvern flæking.. og hefur þá eflaust verið að pirra mig það.
Umm, what to say, what to write...
keypti skólatösku og pennaveski, nestisbox og vatnsbrúsa og stílabækur fyrir stóra strákinn minn í dag!! Ó MÆ GOD!! hann er bara að fara að byrja í skóla, litla skinnið.. líka búinn að missa eina tönn.. ekkert smá flottur! Tannálfurinn gaf honum 101 krónu undir koddan...
En ó well... allir velkomnir í heimsókn í Miðhús!!!
Já ég get sagt fréttir... byggingarleyfið komið!! búið að grafa holu og steypa sökkla, byrjað að fylla inn í grunninn möl og stefnt á að steypa plötuna núna í vikunni... JEY



Er það ekki vúbdídú?? Hins vegar veit ég ekkert hvar húsið mitt er statt.. Finnlandi í verksmiðjunni/gámi/skipi/.. jafn vel bara í einstaka tréborðum hér og þar...Lord knows.. En vonandi auðvitað bara rétt að stíga um borð í skip.. Við stefnun nefnilega á að flytja inn fyrir JÓL!! þannig að þá verður það vonandi orðið fyrir sauðburð..tíhí.. En það veltur að sjálfsögðu bara á því hvernig gengur með húsið úti í Finnlandi, þeir eru víst enga stund að loka því, rétt viku og þá hefst inni vinnan.
Heyrðu.. jæja, nú er ég farin að skríða upp í rúm að sofa í hausinn á mér..(er reyndar hjá mútter í BGN.. í almennilegu neti.. of course!)
Hafið það sem allra best þar til næst elsku dúllurnar mínar...og verið þolinmóð... einn góðann veðurdag (eða vetrardag) kemur næsta bloggfærsla...
Barbara!